Jin í BTS hefur herskyldu sína
Suður-Kóreska poppstjarnan Jin, meðlimur hljómsveitarinnar BTS, hefur herskyldu á morgun. Hann er fyrsti meðlimur hljómsveitarinnar til að ganga í herinn síðan tilkynnt var að hlé yrði gert á starfsemi henni fyrr á árinu.
Hljómsveitin öðlaðist heimsfrægð fyrir nokkrum árum og hefur spilað tónleika um allan heim, ásamt því að eiga lög á vinsældarlistum um allan heim.
Allir hraustir fullorðnir karlmenn í Suður-Kóreu verða að gegna að minnsta kosti 18 mánaða herskyldu í heimalandinu. Lengi vel var deilt um hvort meðlimir hljómsveitarinnar, sem eru sjö, ættu að fá sérstaka undanþágu en þeir staðfestu í október að þeir myndu allir skrá sig í herinn.
Jin hefur fimm vikna þjálfun á þriðjudag og verður síðan sendur á landamæri Suður-Kóreu við Norður-Kóreu að því er kóreski fréttamiðillinn Yonhap segir.