13. desember 2022 kl. 9:58
Erlendar fréttir
Landamæri Venesúela og Kólumbíu opna á ný um áramót
Landamæri Kólumbíu og Venesúela verða opnuð að nýju 1. janúar. Frá þessu greindi Nicolas Maduro, forseti Venesúela, í gær. Landamærin hafa verið lokuð að hluta í sjö ár og algjörlega lokuð síðustu þrjú ár eftir að Maduro rauf stjórnmálasamband sitt við kólumbísku stjórnina. Gustavo Petro, nýr forseti Kólumbíu, leitaðist eftir þíðu í samskiptum nágrannaríkjanna um leið og hann tók við embætti. Samningaviðræður hafa staðið yfir síðan í september.
Ein brú á milli borganna Cucuta í Kólumbíu og San Antonio del Tachira í Venesúela er opin hluta úr degi. Frá klukkan tíu á morgnanna til fimm síðdegis er opið fyrir umferð flutningabíla yfir brúna, og frá fimm á morgnanna til sex á kvöldin er opið fyrir umferð gangandi vegfarenda.