16. desember 2022 kl. 3:17
Erlendar fréttir
Á fimmta hundrað aftaka á almennum borgurum í Úkraínu
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hefur skráð á fimmta hundrað aftökur á almennum borgurum í þremur héruðum Úkraínu frá upphafi innrásar Rússa til 6. apríl. Volker Turk, yfirmaður ráðsins, greinir frá þessu.
Hann kveðst óttast að raunverulegur fjöldi sé verulega mikið meiri en ráðið lítur svo á að skilgreina megi aftökurnar sem stríðsglæpi.
Turk segir mannréttindaráðið hafa skráð alvarleg brot hvort tveggja gegn borgurum og hermönnum.
Þar á meðal eru handahófskenndar handtökur, brottnám, pyntingar og kynferðisbrot en Turk kveður enn verulega skorta á að þeir sem ábyrgð beri séu látnir gjalda fyrir verk sín.