21. desember 2022 kl. 21:08
Erlendar fréttir
Pele fer hrakandi segja læknar hans
Veikindi brasilísku fótboltagoðsagnarinnar Pele hafa versnað. Þetta segja læknar hans á Albert Einstein-sjúkrahúsinu í Sao Paulo í Brasilíu.
Pele, sem er 82 ára gamall, glímir við krabbamein og hjartavandamál. Hann sækir nú læknisþjónustu á almennri deild sjúkrahússins en þarfnast aukinnar aðhlynningar, segja læknar hans.