25. desember 2022 kl. 4:42
Erlendar fréttir

Seinheppinn innbrotsþjófur læsti sig inni í skúr

Lögregla var kölluð til þorpsins Nuussuaq á norðvesturströnd Grænlands um klukkan hálf tvö aðfaranótt þorláksmessu vegna grunsamlegra bankhljóða í bænum. Enn var bankað þegar lögregla kom á vettvang og röktu laganna verðir hljóðið að skúr nokkrum og inni í honum hin bankandi mann. Sá reyndist hafa læst sig inni og þar sem hann gat ekki gert fullnægjandi grein fyrir ástæðu skúrdvalarinnar var hann handtekinn og færður á lögreglustöð.

Lögreglubíll á Grænlandi
KNR / Kathrine Kruse

Að yfirheyrslu lokinni komst lögregla að þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði brotist inn í skúrinn til að stela þar verðmætum en ekki tekist betur til en þetta. Fékk hann að dúsa í fangaklefa, sem var heldur hlýrri en skúrinn, til klukkan ellefu á föstudagsmorgun en fékk svo að fara heim til að halda jól. Hann á þó enn yfir höfði sér ákæru fyrir innbrot og tilraun til þjófnaðar.