28. desember 2022 kl. 18:39
Erlendar fréttir
Ferðamenn frá Kína skikkaðir í sýnatöku á Ítalíu
Stjórnvöld á Ítalíu ætla að skylda alla ferðamenn frá Kína í covid-sýnatöku. Þetta var tilkynnt í dag. Hið sama verður gert í Japan, Malasíu, Taívan og á Indlandi. Í Bandaríkjunum er verið að skoða hvort gripið verði til slíks. Eftir rúma viku falla niður reglur um sóttkví við komu til Kína og er búist við að ferðalög frá Kína eigi eftir að aukast mikið. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin og sérfræðingar víða um heim hafa lýst yfir áhyggjum af því að ný afbrigði hafi breiðst út í Kína. Þar hefur smitum fjölgað mikið eftir að slakað var á takmörkunum á dögunum.