30. desember 2022 kl. 1:53
Erlendar fréttir
Bretar senda málmleitartæki og sprengjueyðingarbúnað til Úkraínu
Breska ríkisstjórnin hefur ákveðið að senda Úkraínumönnum málmleitartæki sem ætlað er að finna jarðsprengjur auk búnaðar til að gera sprengjur óvirkar.
Í yfirlýsingu varnarmálaráðherrans Bens Wallace segir að búnaðinum sé ætlað að tryggja öryggi á þeim svæðum sem Úkraínumenn séu réttilega að endurheimta frá innrásarliði Rússa.
Ráðherrann greinir sömuleiðis frá því að ríkisstjórnin hafi eyrnamerkt 2,3 milljarða sterlingspunda til hernaðaraðstoðar við Úkraínu á næsta ári. Það er sama fjárhæð og á yfirstandandi ári.