31. desember 2022 kl. 16:08
Erlendar fréttir
Óvissustigi almannavarna aflýst
Ríkislögreglustjóri hefur aflýst óvissustigi almannavarna á Suðurlandi, Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu í samráði við lögreglustjóra. Óvissustigi var lýst yfir í gær vegna slæmrar veðurspár. Samhæfingarmiðstöð almannavarna var opnuð klukkan þrjú í nótt en henni lokað klukkan 13.
Veðrið hefur reynst mun skaplegra en spár gerðu ráð fyrir í gær. Enn er þó gul viðvörun á Vestfjörðum og seinna í kvöld tekur sams konar viðvörun gildi á Suðvesturlandi og Vesturlandi.