2. janúar 2023 kl. 1:08
Erlendar fréttir
Alþjóðaflugvöllurinn í Damaskus lokaður eftir loftárás
Öll starfsemi er lömuð á alþjóðaflugvellinum í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, eftir loftárás Ísraelsmanna. Norska ríkisútvarpið hefur þetta eftir sýrlenskum hernaðaryfirvöldum.
Tveir hermenn fórust í árásunum sem jafnframt ollu nokkru tjóni á mannvirkjum en atlögunum var einnig beint að svæðum umhverfis flugvöllinn. Ísraelsher hefur ekki enn tjáð sig um árásirnar.