3. janúar 2023 kl. 3:19
Erlendar fréttir

Evr­ópu­sam­band­ið býður Kín­verj­um bólu­efni end­ur­gjalds­laust

Evrópusambandið hefur boðið kínverskum stjórnvöldum bóluefni gegn COVID-19 án endurgjalds til liðsinnis í glímunni við umfangsmikla bylgju faraldursins sem nú ríður yfir landið.

epa08692859 European Commissioner for Health Stella Kyriakides speaks during a news conference on the updated coronavirus disease (COVID-19) risk assessment, in Brussels, Belgium, 24 September 2020.  EPA-EFE/FRANCOIS LENOIR / POOL
REUTERS POOL / EPA-EFE

Þetta boð er hluti af sameiginlegri viðbragsðáætlun Evrópusambandsríkja gagnvart hættunni af smitum með ferðalöngum frá Kína, sem Stella Kyriakides, heilbrigðismálastjóri sambandsins, hyggst innleiða.

Hún er sömuleiðis sögð hafa boðið Kínverjum aðstoð heilbrigðisérfræðinga en ekki hafa enn borist viðbrögð þarlendra stjórnvalda.