5. janúar 2023 kl. 20:34
Erlendar fréttir
McCarthy tilnefndur í níunda sinn
Skollaleikurinn í bandarísku fulltrúadeildinni heldur áfram Repúblikanar hafa tilnefnt Kevin McCarthy sem forseta í níunda sinn en honum hefur verið hafnað í átta umferðum í röð. Hvorki gengur né rekur hjá repúblikönum að ná samkomulagi um McCarthy sem næsta þingforseta. 218 atkvæði af 435 þarf til að ná kjöri, McCarthy hefur fengið 201 í síðustu átta umferðum.