Sprenging í fjölbýlishúsi í Stokkhólmi
Lögregla biður íbúa fjölbýlishúss i Farsta, sunnanvert í Stokkhólmi höfuðborg Svíþjóðar, að halda sig innandyra um hríð þennan morguninn eftir að mikil sprenging varð í stigagangi hússins.
Ekki hafa borist tíðindi af slysum á fólki, en nokkurt tjón varð í í húsinu samkvæmt frétt sænska ríkisútvarpsins af málinu. Tilkynning um sprenginguna barst laust eftir klukkan sex í morgun að staðartíma og var mikill viðbúnaður viðbragðsaðila og lögreglu, ásamt sprengjusveit við húsið um hríð.
Lögregla hefur nú tekið við rannsókn málsins, hefur girt vettvanginn af, hyggst ræða við húsráðendur í dag auk þess sem leit stendur yfir að mögulegum sökudólgum.
Alda ofbeldisverka hefur riðið yfir Stokkhólm frá því um jól sem talin er tengjast starfsemi glæpagengja í borginni og lögregla leitar nú tengsla við þau mál. Einn er látinn af völdum skotsára eftir skotárás í Jorbro, sunnan Stokkhólms á miðvikudag.