6. janúar 2023 kl. 13:49
Erlendar fréttir

Breski herinn og talibanar gagnrýna Harry

Anas Haqqani, leiðtogi Afganistans, er harðorður í garð Harry prins fyrir ummæli sem hann lætur falla í ævisögu sinni um tíma sinn í breska hernum í Afganistan. Harry segist í bókinni hafa orðið 25 að bana í Afganistan og hann hafi ekki litið á fórnarlömb sín sem manneskjur, heldur séð þá sem taflmenn. Haqqani skrifar á Twitter: „Herra Harry! Þeir sem þú drapst voru ekki taflmenn, þeir voru manneskjur; Þeir áttu fjölskyldur sem biðu eftir því að fá þá aftur heim.“

epa06687384 Britain's Prince Harry and Meghan Markle attend the memorial service to commemorate the 25th anniversary of the murder of Stephen Lawrence in St Martins in the Field, central London, Britain, 23 April 2018. Stephen was stabbed to death by a group of six white youths in an unprovoked racist attack as he waited at a bus stop on Well Hall Road in Eltham, London, Britain on 22 April 1993. Prince Harry will read a message of support on behalf of The Prince of Wales during the service. EPA-EFE/FACUNDO ARRIZABALAGA
EPA / EPA-EFE

Harry skapaði sér ekki aðeins óvinsældir talibana, heldur einnig fyrrum félaga í breska hernum. Tim Collins, uppgjafaherforingi sem leiddi breska hersveit í Írak árið 2003, fordæmir bókina og segir hana sorglega svikamyllu til að græða pening. „Svona hagar þú þér ekki í hernum, við hugsum ekki svona,“ hefur AFP fréttaveitan eftir Collins. Hann segir Harry nú hafa snúið baki við hinni fjölskyldu sinni, hernum, eftir að hafa gert lítið úr konungsfjölskyldunni.