Tveir ungir mótmælendur líflátnir í Íran
Yfirvöld í Íran tóku á þriðjudag tvo unga menn af lífi vegna þátttöku þeirra í mótmælum sem geisað hafa um margra vikna skeið gegn klerkastjórninni og kvennakúgun í landinu. Dómsmálaráðuneyti Írans greindi frá þessu í morgun. Mennirnir, 20 og 22 ára gamlir, voru dæmdir til dauða fyrir að hafa banað liðsmanni Basj-sveitanna, vopnaðra sjálboðaliðasveita sem eru hliðhollar stjórnvöldum og leggja lögreglu og öryggissveitum landsins iðulega lið þegar eftir því er kallað.
Tvímenningarnir, Mohammad Mahdi Karami og Seyyed Mohammad Hosseini, voru dæmdir til dauða í desember og hengdir á þriðjudag. Tveir ungir menn aðrir voru hengdir í desember, en alls hafa fjórtán verið dæmdir til dauða vegna þátttöku í mótmælaaðgerðum síðustu mánaða. Þær blossuðu upp eftir að hin kúrdíska, 22 ára Mahsa Amini dó í haldi siðgæðislögreglu landsins, tveimur dögum eftir að hún var handtekin fyrir meint brot á reglum um rétta notkun höfuðslæðu.