8. janúar 2023 kl. 15:24
Erlendar fréttir

Fimm al­var­lega slas­að­ir eftir eld í fjöl­býl­is­húsi í Stokk­hólmi

Sjö eru slasaðir, þar af fimm alvarlega, eftir eldsvoða í fjölbýlishúsi við Frejgatan í miðborg Stokkhólms í dag. Samkvæmt heimildum sænska ríkissjónvarpsins kviknaði eldurinn í kjallara hússins. Vegatálmar voru settir upp í nærliggjandi götum til þess að veita viðbragðaðilum svigrúm til að vinna sína vinnu. Ellefu sjúkrabílar eru á staðnum til að hlúa að fólki. Rýma þurfti húsið og á eftir að athuga hvort einhverjir hafi orðið fyrir reykeitrun.