10. janúar 2023 kl. 4:43
Erlendar fréttir

Ellefu ára stúlka lést í skotbardaga glæpamanna

Ellefu ára stúlka lést þegar til skotbardaga kom í belgísku hafnarborginni Antwerpen á mánudag. Talið er að skotbardagann megi rekja til umsvifamikils eiturlyfjasmygls og -viðskipta í borginni, en yfirvöld haldlögðu þar yfir 100 tonn af kókaíni í fyrra. Lögregla segir stúlkuna að líkindum hafa orðið fyrir brotum eða flísum úr byssukúlum og örbylgjuofni sem sprakk þegar skot lenti í honum.