12. janúar 2023 kl. 5:26
Erlendar fréttir

Ástralir vilja flýta gerð varnarsamnings við Papúa Nýju Gíneu

Hafa þarf hraðann á við gerð nýs öryggis- og varnarsamnings milli Ástralíu og Papúa Nýju Gíneu.

epa10091138 Australian Prime Minister Anthony Albanese delivers an address during the Last Post Ceremony at the Australian War Memorial in Canberra, Australian Capital Territory, Australia, 25 July 2022.  EPA-EFE/MICK TSIKAS AUSTRALIA AND NEW ZEALAND OUT
EPA

Þetta er mat Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, en ríkisstjórn hans hyggst beita öllum leiðum til að bregðast við auknum umsvifum Kínverja á Kyrrahafi. Forsætisráðherrann ávarpaði þing Papúa Nýju Gíneu í morgun þar sem hann lagði áherslu á mikilvægi samstöðu ríkja á svæðinu.

Albanese sagði samninginn, sem enn er í smíðum, verða að byggjast á trausti og líkti ríkjunum við fjölskyldu sem yrði að standa saman. Papúa hlaut sjálfstæði frá Ástralíu árið 1975 en Ástralir leggja þessum nágrönnum sínum til víðtæka efnahags-, varnar- og löggæslaðstoð.

Vestrænum leiðtogum var nokkuð brugðið eftir að drögum að varnarsamningi Kína og Salómónseyja var lekið í apríl á síðasta ári en leiðtogar annarra ríkja höfnuðu mánuði síðar víðtækara samkomulagi.