12. janúar 2023 kl. 2:08
Erlendar fréttir

Bilun í aðvörunarkerfi olli miklum töfum á innanlandsflugi

FILE- In this Jan. 7, 2019, file photo a Dreamliner 787-10 arriving from Los Angeles pulls up to a gate in Newark Liberty International Airport in Newark, N.J. United Airlines reports financial results Tuesday, Jan. 15. (AP Photo/Seth Wenig, File)
AP

Bandarísk flugmálayfirvöld segja engin merki þess að tölvuárás hafi verið gerð á NOTAM aðvörunarkerfi til flugmanna en tímabundin bilun á því varð til þess að fresta þurfti fjöldanum öllum af innanlandsflugferðum í gær.

Kerfinu er ætlað að tilkynna flugmönnum um allar breytingar og hættur sem geta haft áhrif á öryggi í flugferðum. Frumrannsókn bendir til bilunar í gagnagrunni kerfisins en þótt tekist hafi að komast fyrir vandann leiddi stöðvunin af sér miklar tafir sem varla sér enn fyrir endann á.