20. janúar 2023 kl. 15:12
Erlendar fréttir

Fólki bjargað úr skíðalyftu í Hlíðarfjalli

Á annan tug skíðafólks sat fast í skíðalyftu í Hlíðarfjalli frá klukkan hálf tvö í dag. Lyftan, sem nefnist Fjarkinn, stöðvaðist eftir að vír fór út af sporinu.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra tókst að koma nokkrum úr lyftunni á þriðja tímanum, en það var ekki fyrr en klukkan hálf fjögur sem tókst að bjarga koma öllum niður, að sögn Magnúsar Arturo Batista, svæðisstjóra í Hlíðarfjalli.

Bilunin er ekki talin tengjast veðri, enda fínasta veður í fjallinu. Annars hefði skíðasvæðið ekki verið opið.

Frá björgunaraðgerðum í Hlíðarfjalli.
RÚV / Ágúst Ólafsson

Fólk sem bjargað var úr lyftu í Hlíðarfjalli.
RÚV / Ágúst Ólafsson