Rússnesk eldflaug hæfði fjölbýlishús í Kharkiv
Einn almennur borgari fórst í kvöld og þrír særðust þegar rússnesk eldflaug hæfði fjölbýlishús í borginni Kharkiv í austurhluta Úkraínu. Oleh Synegubov borgarstjóri greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Telegram en eldur logar í byggingunni.
Anton Gerasjenkó, upplýsingafulltrúi innanríkisráðuneytisins, segir björgunarfólk vera að störfum í húsinu. Þrennt fórst í eldflaugaárás á borgina Kherson, sunnanvert í landinu, í gær auk þess sem innviðir skemmdust, einnig sjúkrahús, skóli og fjöldi íbúðarhúsa.
Rússar beina árásum sínum reglulega að Khersonborg, en láta önnur svæði sunnanvert afskiptalaus eftir að þeir voru hraktir á brott úr samnefndu héraði í nóvember.
Þeir hafa frekar einbeitt sér að landinu austanverðu og Volodymyr Zelensky forseti segir við ramman reip að draga í átökum við innrásarliðið í Donetsk.
Því þurfi að hraða vopnasendingum til Úkraínu. Hann segir mörg svæði héraðsins undir stöðugum atlögum Rússa og nýjar gerðir vopna þurfi til að bægja þeim frá.