Donald Trump stefnir Bob Woodward vegna birtingar viðtala
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur stefnt blaðamanninum Bob Woodward og Simon & Schuster, útgefanda hans fyrir dóm og krefst fébóta.
Ástæðan er sú að blaðamaðurinn birti seint á seinasta ári átta klukkustundir af óklipptum upptökum með samræðum sínum við forsetann fyrrverandi. Upptökurnar voru gerðar á árunum 2016 til 2020 og komu fyrir eyru almennings í tengslum við útgáfu hljóðbókar undir heitinu The Trump Tapes.
Trump telur hljóðritanirnar ekki eiga nokkuð erindi við téðan almenning, álítur að sér vegið og fer fram á fimmtíu milljónir bandaríkjadala í bætur, eða jafnvirði um sjö milljarða íslenskra króna.
Bob Woodward starfaði lengi fyrir The Washington Post og fletti meðal annars ofan af Watergate-hneykslinu ásamt Carl Bernstein árið 1972. Þær uppljóstranir leiddu að lokum til afsagnar Richards Nixon Bandaríkjaforseta tveimur árum síðar.