3. febrúar 2023 kl. 17:52
Erlendar fréttir

Einn handtekinn vegna eldsvoða og danska lögreglan til aðstoðar

Grænlenska lögreglan fær aðstoð frá starfssystkinum sínum í Danmörku við rannsókn manndrápsins í Nuuk í vikunni. Áttræð kona lét lífið í eldsvoða í íbúð í fjölbýlishúsi á þriðjudagskvöld. Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn á miðvikudag og úrskurðaður í þriggja sólarhringa gæsluvarðhald. Hann neitar alfarið sök í málinu.

Meðal þeirra sem fengnir eru til aðstoðar frá Danmörku er sérstakur brunahundur, sem er þjálfaður til að þefa uppi eldfim efni á vettvangi. Að auki komu rannsóknarlögreglumenn frá Kaupmannahafnarlögreglunni og starfsmenn tæknideildar dönsku lögreglunnar.