14. febrúar 2023 kl. 2:55
Erlendar fréttir
Hluturinn yfir Huron-vatni „lítill, málmkenndur belgur“
Lítill, málmkenndur belgur eru orðin sem varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna notar til að lýsa ókennilega hlutnum sem skotinn var niður á laugardag yfir Huron-vatni nærri landamærum Kanada. Í minnisblaði ráðuneytisins segir einnig að einhverskonar þræðir hafi hangið neðan úr blöðrunni sem er eitt þriggja óþekktra fyrirbæra sem voru skotin niður yfir Norður-Ameríku um helgina. Hin tvö voru á sveimi yfir Alaska og Yukon sjálfstjórnarsvæðinu í norðvesturhluta Kanada.