15. febrúar 2023 kl. 0:57
Erlendar fréttir
Bolsonaro snýr aftur til Brasilíu í mars
Jair Bolsonaro kveðst ætla að snúa heim til Brasilíu í næsta mánuði. Frá þessu greinir hann í viðtali við bandaríska dagblaðið Wall Street Journal. Hann fór til Flórída í Bandaríkjunum skömmu áður en Luiz Ignacio Lula da Silva tók við forsetaembættinu af Bolsonaro eftir mjög spennandi kosningar.
Þó Bolsonaro sé ekki í Brasilíu hafa stuðningsmenn hans ekki látið sitt eftir liggja. Þeir ruddust inn í þinghús Brasilíu snemma í janúar og fleiri opinberar byggingar, og létu þar öllum illum látum. Bolsonaro segist í viðtalinu við Wall Street Journal ætla að leiða andstöðuna við stjórn Lula. Þá segist hann ætla að svara fyrir þær ásakanir að hann hafi sjálfur átt þátt í að senda mótmælendur inn í opinberu byggingarnar.