16. febrúar 2023 kl. 9:54
Erlendar fréttir
Fjölskylda fannst á lífi eftir 10 daga í rústum
Móðir og tvö börn hennar fundust í dag á lífi í rústum húss í borginni Antakya í Tyrklandi. Þar höfðu þau verið föst í tíu daga eftir skjálftana tvo sem riðu yfir suðaustur Tyrkland og norðvestur Sýrland á mánudag í síðustu viku.
Al Jazeera hefur eftir björgunarmönnum að þau þjáist af ofþornun en séu annars við nokkuð góða heilsu, miðað við hve lengi þau voru föst. Staðfest hefur verið að fjörutíu og tvö þúsund fórust í skjálftunum, þrjátíu og sex þúsund í Tyrklandi og sex þúsund í Sýrlandi.