18. febrúar 2023 kl. 0:39
Erlendar fréttir
Al Thani leggur fram tilboð í Manchester United
Sjeik Jassim bin Hamad Al Thani, stjórnarformaður eins stærsta banka Katar, hefur lagt fram tilboð í enska knattspyrnufélagið Manchester United. Breska ríkisútvarpið segir frá.
Sir Jim Ratcliffe, eigandi stórfyrirtækisins INEOS, lagði einnig fram tilboð áður en skilafrestur rann út klukkan 22 í gærkvöld.
Glazier-fjölskyldan, sem hefur verið eigandi Man United frá árinu 2005, hyggst selja félagið og leita á önnur mið.
Katörsk samsteypa sjeiksins Jassim hefur gefið frá sér að markmiðið með tilboðinu sé að endurreisa félagið og koma því aftur til fyrri dýrðar.
Lagt verði áherslu á að tryggja að Manchester United verði þekktur sem stærsti knattspyrnuklúbbur í heimi.