25. febrúar 2023 kl. 23:07
Erlendar fréttir

Jarðskjálfti af stærðinni 6,2 á Papúa Nýju-Gíneu

Jarðskjálfti af stærðinni 6,2 reið yfir Nýja-Bretland á Kyrrahafseyríkínu Papúa Nýju-Gíneu aðfaranótt 26. febrúar 2023.
USGS

Jarðskjálfti af stærðinni 6,2 reið yfir afskekkt og fámennt hérað á Kyrrahafseyríkinu Papúa Nýju-Gíneu í dag. Bandaríska jarðfræðistofnunin (USGS) greinir frá þessu en flóðbylgjuviðvörun hefur ekki verið gefin út vegna skjálftans.

Jarðskjálftinn átti upptök á 38 kílómetra dýpi og fannst í allt að áttatíu kílómetra fjarlægð. AFP-fréttaveitan hefur eftir sjónarvottum að skjálftinn hafi ekki verið mjög slæmur. Papúa Nýja-Gínea stendur á Kyrrhafseldhringnum þar sem jarðskjálftar og eldgos eru tíð.