25. febrúar 2023 kl. 3:25
Erlendar fréttir
Rússar sagðir hafa tvöfaldað skipaflotann á Svartahafi
Rússar hafa tvöfaldað skipaflota sinn í Svartahafi samkvæmt upplýsingum úkraínskra hermálayfirvalda. Þar eru nú átta herskip grá fyrir járnum.
Fjölgun skipanna og mikil flugumferð telja hermálayfirvöld geta verið til marks um yfirvofandi eldflauga- og drónaárásir af hafi.
Þjóðverjar hyggjast afhenda Úkraínumönnum átján Leopard 2 skriðdreka í stað fjórtán eins og áður hafði verið tilkynnt. Varnarmálaráðherrann Boris Pistorius greindi frá þessu. Hann heitir því jafnframt að Úkraínuher fái yfir hundrað skriðdreka af eldri gerð.