26. febrúar 2023 kl. 4:20
Erlendar fréttir

Danskur ráðherra frestar utanför vegna harðra deilna um frídag

Svo rammt kveður að deilum í Danmörku vegna áforma ríkisstjórnar Mette Frederikssen um að afnema lögbundinn frídag að Magnus Heunicke umhverfisráðherra hefur ákveðið að fresta fyrirhugaðri ferð sinni til Indlands.

Magnus Heunicke
Ljósmynd / regeringen.dk

Frídagurinn umdeildi er fjórði föstudagur eftir páska, nefndur Stóri bænadagur en markmið stjórnvalda með aflagningu hans er spara fé svo mæta megi auknum útgjöldum til varnamála vegna innrásar Rússa í Úkraínu.

Bænadagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur síðastliðin þrjú hundruð ár og áformin hafa mætt þungri andstöðu almennings, þjóðkirkjunnar, verkalýðsfélaga og stjórnarandstöðunnar. Fulltrúar hennar krefjast þess að þingheimur allur, þar á meðal ráðherrar, greiði atkvæði um tillögu ríkisstjórnarinnar.