3. mars 2023 kl. 6:21
Erlendar fréttir

Leyni­göng fund­ust í Pýr­a­míd­an­um mikla í Gísa

Staðfest hefur verið að leynigöng hafi fundist fyrir ofan megininnganginn að Pýramídanum mikla í Gísa. Fulltrúar egypsku fornminjastofnunarinnar greina frá þessu. Búist er við fleiri fundum.

Pýramídinn í Gísa er 4.500 ára gamall og hið elsta af sjö undrum veraldar og jafnframt það eina sem stendur enn. Í grein sem birt var í ritinu Journal á fimmtudag segir að göngin sem uppgötvuðust gætu verið vísbending um hvernig pýramídinn hafi verið var byggður.

Mostafa Waziri, yfirmaður æðstaráðs fornminjastofnunar Egyptalands, segir að göngin, sem eru ókláruð, hafi líklega verið byggð til að dreifa þyngd pýramídans kringum megininnganginn eða annan klefa sem ekki hefur verið uppgötvaður enn.

Fyrst var komið auga á leynigöngin með svokallaðri muography tækni, að því er fram kemur í umfjöllun BBC.

Egypski fornleifafræðingurinn Zahi Hawass segir að göngin gætu varpað ljósi á hvort grafhýsi faraóans Khufu sé enn innan pýramídans. Hann veltir fyrir hvort eitthvað mikilsháttar kunni að leynast í rýminu fyrir neðan göngin og bætir við að hann sé viss um að innan nokkurra mánaða komi í ljós hvort hann hafi rétt fyrir sér eður ei.

wikipedia / -