8. mars 2023 kl. 6:24
Erlendar fréttir
Leiðtogi Wagner segir austurhluta Bakhmut á þeirra valdi
Austurhluti borgarinnar Bakhmut er nú á valdi Rússa að sögn Yevgenys Prigozhin, leiðtoga Wagner-málaliðahópsins. Hann segir hermenn sína hafa hertekið borgina austan Bakhmuta árinnar sem skiptir henni í tvennt.
Blóðugar orrustur hafa verið háðar um Bakhmut mánuðum saman. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti kveðst óttast að hernám borgarinnar opni innrásarhernum greiða leið að austurhéruðum landsins.