9. mars 2023 kl. 1:33
Erlendar fréttir

McCarthy þiggur ekki heimboð Zelenskys

Kevin McCarthy leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Honum mistókst í þrígang að fá alla félaga sína til að kjósa sig forseta nýkjörinnar deildarinnar, þegar hún kom saman í fyrsta skipti 4. janúar 2023.
epa / Michael Reynolds

Repúblikaninn Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, þiggur ekki heimboð Volodymyrs Zelensky Úkraínuforseta. Þingmenn Repúblikanaflokksins hafa lýst mikilli andstöðu við þann mikla efnahags- og hernaðarstuðning sem Bandaríkin hafa veitt Úkraínumönnum eftir innrás Rússa í landið.

Zelensky notaði því tækifærið meðan hann var í viðtali á CNN fréttastöðinni til að bjóða McCarthy til Úkraínu. Forsetinn sagði brýnt að þingmaðurinn sæi með eigin augum afleiðingar stríðsins á Úkraínu og hvaða þýðingu stuðningurinn hefði.

Eftir það gæti McCarthy dregið sínar ályktanir, en hann afþakkar boðið og segist ekki þurfa til Úkraínu til að skilja það. Hann kveðst styðja baráttu Úkraínumanna en vilji ekki afhenda þeim óútfylltan tékka. Hann fái allar þær upplýsingar sem hann þurfi til að vita hver staðan sé í Úkraínu.