1. júní 2023 kl. 18:22
Erlendar fréttir

Færeyingar herða reglur um komur rússneskra skipa

Regur um komur rússneskra skipa hafa verið hertar í Færeyjum. Aðeins fiskiskipum, á veiðum tengdum fiskveiðisamningi milli Færeyja og Rússlands, verður leyft að leggjast að bryggju þar.

Færeysk stjórnvöld voru gagnrýnd fyrir að framlengja fiskveiðisamning við Rússa í fyrra, þrátt fyrir innrás þeirra í Úkraínu.

Eftir sýningu þáttanna Skuggastríð, sem ríkisfjölmiðlar hinna Norðurlandanna unnu, þrýstu dönsk stjórnvöld á Færeyinga að loka höfnum sínum fyrir rússneskum skipum. Það var gert í ljósi tíðinda af mögulegum njósnum og að skip, sem talin voru búin njósnatækjum, hafi oft lagt að bryggju í Færeyjum síðustu ár.

Rússneski togarinn Melkart, eitt þeirra skipa sem talið er hafa stundað njósnir við strendur Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar, liggur við festar í Þórshöfn höfuðstað Færeyja.
KVF