20. júní 2023 kl. 10:08
Erlendar fréttir
Finnland

Orpo stað­fest­ur í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra

Petteri Orpo, leiðtogi Íhaldsflokksins, var í dag staðfestur í embætti forsætisráðherra af finnska þinginu. Orpo leiðir fjögurra flokka stjórn Íhaldsflokksins, Sannra Finna, RKP-flokksins og Kristilegra demókrata. Síðar í dag verður ný ríkisstjórn Finnlands formlega mynduð á ríkisráðsfundi með forsetanum Sauli Niinistö.

Petteri Orpo, leiðtogi Íhaldsmanna, fagnar sigri.
AP / Antti Aimo-Koivisto

Íhaldsflokkurinn fær sjö ráðuneyti til viðbótar við forsætisráðuneytið, þar á meðal utanríkis- og varnarmálaráðuneytin. Sannir Finnar fá sjö ráðherra, RKP-flokkurinn verður með þrjá til að byrja með, en að tveimur árum liðnum verður ráðuneyti íþróttamála fært til Kristilegra demókrata, sem auk þess fara með landbúnaðarráðuneytið.