Spá því að sykursjúkum fjölgi í 1,3 milljarða fyrir 2050
Fjöldi sykursjúkra mun aukast talsvert fyrir árið 2050, samkvæmt alþjóðlegri rannsókn heilbrigðisrannsóknarstofnunnar í samstarfi við Háskólann í Washington sem kom út í gær.
Samkvæmt henni nær fjöldi sykursjúkra 1,3 milljörðum á næsta aldarfjórðungi nema gripið sé til aðgerða. 529 milljónir eru með sykursýki.
Búist er við að tilfellum fjölgi í öllum löndum heims en hún verður ekki jöfn allsstaðar. Samkvæmt rannsókninni fjölgar sykursjúkum mest í Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum.
Þá mun meirihluti tilfella teljast til sykursýki tvö, sem rannsakendur segja að hægt sé að koma í veg fyrir.
Rannsóknin er hluti af röð rannsókna á sykursýki og áhrifum hennar sem kostað er af Bill Gates og Melinda Gates. Henni er ætlað að vekja athygli á fjölguninni og í raun stuðla að lausnum til þessað koma í veg fyrir að niðurstöður hennar verði að veruleika.