Söngkonan Madonna hefur frestað tónleikaferð sinni vegna alvarlegrar bakteríusýkingar. Hún var lögð inn á gjörgæsludeild sjúkrahúss um helgina og er nú á batavegi.
Tónleikaferð Madonnu sem átti að hefjast í Vancouver í Kanada um miðjan júlí ber yfirskriftina Celebration, til stóð að hún héldi 84 tónleika víðs vegar um heim og átti ferðinni að ljúka í janúar.
Talsmaður söngkonunnar segir í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum að búist sé við að hún nái sér að fullu og vonast sé til að hún geti stigið á svið innan tíðar.