Jákvæð mismunun háskóla óheimil samkvæmt hæstarétti
Hæstiréttur Bandaríkjanna bannaði í dag háskólum að taka tillit til kynþáttar umsækjenda um nám.
Það sem kallað er jákvæð mismunun hefur verið í gildi í áratugi við val á nemendum í háskóla, en ekki lengur samkvæmt tíðindum dagsins. Andstæðingar jákvæðrar mismununar hafa haldið því fram verklagið bitni á nemendum sem ekki eru af afrískum uppruna.
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, lýsir yfir vonbrigðum með niðurstöðuna og segir ekki rétt að skólar veiti nemendum inngöngu aðeins vegna kynþáttar. Það er aðeins einn þáttur af mörgum sem tekið sé tillit til, eftir að fólk hafi uppfyllt kröfur til náms. „Rétturinn hefur í raun bundið enda á jákvæða mismunun í inntöku í háskóla. Ég er afar ósammála úrskurði réttarins,“ sagði Bandaríkjaforseti. Þó að rétturinn hafi kveðið upp sinn dóm breyti hann ekki grunngildum Bandaríkjanna.