12. júlí 2023 kl. 22:01
Erlendar fréttir
Bretland

Lögregla ekki með sannanir um brot fréttaþular

Lögregla í London og Suður Wales rannsakar ekki nánar, í bili, mál á hendur sjónvarpsmanni BBC sem sakaður hefur verið um að greiða unglingsstúlku fyrir kynferðislegar myndir af henni.

Tilkynnt var í kvöld að samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hefði sjónvarpsmaðurinn ekki gerst brotlegur við lög.

Verið hefur á huldu um hvern ræðir en eiginkona Huw Edwards, aðal fréttaþular Breska ríkisútvarpsins, greindi frá því í tilkynningu í dag að hann væri maðurinn og að hann væri vistaður á geðdeild.

Fleiri ásakanir á hendur Edwards hafa verið tilkynntar, meðal annars fyrir óviðeigandi framkomu við samstarfsfólk.

Huw Edwards, fréttaþulur BBC.
EPA-EFE / TOLGA AKMEN