23. júlí 2023 kl. 15:45
Erlendar fréttir
Rússland
Heræfingum lokið í Japanshafi
Sameiginlegum heræfingum Rússlands og Kína í Japanshafi er lokið. Ríkin hafa leitast vað að efla hernaðarlega tengsl allt frá innrás Rússa í Úkraínu í fyrra. Kína hefur ekki fordæmt innrásina. Ríkin eiga það sameiginlegt að vilja vega upp á móti því sem þau álíta ráðandi stöðu Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi.
Rússneska varnarmálaráðuneytið hefur sagt að meginmarkmið síðustu heræfingar sem hófst á fimmtudag hafi verið að efla samvinnu ríkjanna á sjó og viðhalda stöðugleika og friði í þessum heimshluta. Um 20 hernaðaraðgerðir hafi verið æfðar í Japanshafi að þessu sinni.