Ætla að nýta sér veikar loftvarnir Moskvu
Eftir að Rússar neituðu að framlengja kornsamkomulagið í síðustu viku hafa þeir beint sprengjum sínum að borgum og bæjum við Svartahaf. Héraðsstjórinn í Odesa segir markmiðiðið augljóst, að koma í veg fyrir útflutning á korni.
Utanríkisráðherra Úkraínu, Dmytro Kuleba, hvetur þjóðarleiðtoga í Afríku og Asíu til að fordæma árásir Rússa á korngeymslur í landinu því erfitt gæti reynst að koma korninu þangað sem neyðin er mest. Í nótt eyðilagðist kornbirgðastöð í Odesa í drónaárás.
Fjórir starfsmenn hafnarinnar særðust. Í gær létust tveir og rúmlega tuttugu særðust í drónaárás á Odesa. Þá hét Zelensky forseti Úkraínu hefndum. Úkraínskir fjölmiðlar hafa eftir leyniþjónstu landsins að árásum sem þessum eigi eftir að fjölga. Andriy Yusov talsmaður úkraínska hersins segir að árásirnar afhjúpi veikar loftvarnir í rússnesku höfuðborginni og það ætli Úkraínumenn nýta sér.