Á fimmtudag tókst Kristin Harila og Lama (Tenjin Sherpa) að klífa K2. Hann þykir afar erfiður, jafnvel fyrir vana fjallgöngumenn.
Fyrri methafi var hinn nepalski Nirmal Purja sem kleif sömu tinda á 189 dögum árið 2019. Því munaði næstum hundrað dögum á fyrra meti og nýju meti Harila og Lama.
Upprunalegt markmið Harila var að slá metið á síðasta ári en vegna COVID-19 takmarkanna kínverska ríkisins um erlent fjallgöngufólk þurfti hún þá að láta sér nægja að klífa tólf af hæstu tindum heims.