1. ágúst 2023 kl. 2:25
Erlendar fréttir
Búrkína Fasó

Skothvellir kveða við í höfuðborg Búrkína Fasó

Skothvellir hafa kveðið við í nótt nærri herflugvelli í miðhluta Ouagadougou höfuðborgar Vestur-Afríkuríkisins Búrkína Fasó.

Soldiers loyal to Burkina Faso's latest coup leader Capt. Ibrahim Traore gather outside the National Assembly as Traore was appointed Burkina Faso's transitional president in Ouagadougou, Burkina Faso, Friday Oct. 14, 2022. (AP Photo/Kilaye Bationo)
AP

Tíu mánuðir eru liðnir frá því að herforingjar undir stjórn höfuðsmannsins Ibrahims Traore steyptu Paul-Henri Sandaogo Damiba ofursta af stóli eftir innan við níu mánaða valdatíð. Damiba rændi völdum af Roch Marc Christian Kabore, kjörnum forseta Búrkína Fasó.

Ástandið í landinu og á Sahel-beltinu öllu hefur undanfarin ár verið litað af baráttu við vígasveitir öfga-íslamista. Ástæða beggja valdaránanna var vangeta stjórnvalda að bregðast við atlögum þeirra. Þúsundir hafa fallið í árásum vígamanna undanfarin ár, fimm þúsund það sem af er þessu ári, og næstum tvær milljónir manna hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín.