8. ágúst 2023 kl. 6:15
Erlendar fréttir
Heilbrigðismál
Hugsanleg tengsl milli mengunar og sýklalyfaónæmis
Tengsl gætu verið á milli loftmengunar og aukins sýklalyfjaónæmis, samkvæmt nýrri alþjóðlegri rannsókn sem fjallað er um á vef The Guardian.
Gögnum rannsóknarinnar var safnað yfir tvo áratugi frá fleiri en hundrað löndum. Sýklalyfjaónæmi færist í aukana og er meðal helstu ógna fyrir heilsufar fólks.
Helstu orsakir sýklalyfjaónæmis er ofnotkun sýklalyfja en niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að vandinn aukist með aukinni loftmengun. Þó kemur ekki fram hvers vegna þetta tvennt gæti tengst.