13. ágúst 2023 kl. 7:10
Erlendar fréttir
Rússland
Á þriðja þúsund flutt í skjól frá flóðasvæðum í Rússlandi
Á þriðja þúsund manns hafa verið flutt á brott af flóðasvæðum í Prímorja-fylki í suðausturhluta Rússlands, nærri landamærunum að Kína og Norður-Kóreu.
Úrhellisrigning sem fylgdi hitabeltisstorminum Khanun olli flóðunum og nærri fimm þúsund byggingar eru umflotnar vatni. Björgunarsveitir hafa komið upp þrettán bráðabirgðaskýlum en flóðin eru þau verstu á svæðinu í heilan áratug samkvæmt TASS-fréttastofunni rússnesku.
Stormurinn Khanun fór mikinn í Japan fyrr í vikunni áður en hann geystist yfir Kóreuskaga og neyddi tugþúsundir til að yfirgefa skátamót í Suður-Kóreu.