Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, og Vladimír Pútín Rússlandsforseti heita hvor öðrum að treysta enn frekar vináttubönd ríkjanna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í bréfaskiptum þeirra á milli í tilefni þess að 78 ár eru liðin frá því Kórea losnaði undan veldi Japana.
AP POOL / EPA-EFE
Tímamótanna er einnig minnst í Suður-Kóreu þar Yoon Suk Yeol forseti sagði Japan mikilvægt bandalagsríki sem deildi sömu gildum og hagsmunum. Brýnt væri að efla samvinnuna í skugga kjarnorkuútþenslu Norður-Kóreumanna.
Kim segir í sínu bréfi til Pútíns að vináttan hafi skapast með sigri yfir Japönum í síðari heimsstyrjöld. Ríkisfjölmiðill Norður-Kóreu hermir að Kim vonist til að vináttan þróist í langvarandi hernaðarsamvinnu.