20. ágúst 2023 kl. 4:54
Erlendar fréttir
Bandaríkin
Maður lést í gróðureldum í Bandaríkjunum
Einn maður lést vegna gróðurelda í Washingtonríki í Bandaríkjunum í gær. Nákvæm dánarorsök liggur ekki fyrir en talskona náttúruauðlindaráðuneytis Washingtonríkis segir að hana megi rekja til gróðureldanna.
Eldur kom upp í vesturhluta bæjarins Medical Lake síðdegis á föstudag en mikill vindur varð til þess að hann dreifðist fljótt.
Í gær náði hann yfir svæði sem er 38 ferkílómetrar að stærð. Yfirvöld segja að nú hafi minnst hundrað áttatíu og fimm byggingar orðið fyrir skemmdum og meðal þeirra séu íbúðarhús.
Gripið var til rýmingar í Medical Lake í gær en síðdegis fyrirskipuðu yfirvöld líka um rýmingu í nærliggjandi bænum Tyler.