Þrítugur karlmaður var skotinn til bana í Kristjaníu í Kaupmannahöfn í kvöld. Fjórir til viðbótar særðust í árásinni, þar af einn alvarlega.
DR
Sá látni hefur tengsl við glæpasamtök í borginni en lögregla getur ekki upplýst um hvort svo hátti með hina, samkvæmt frétt danska ríkisútvarpsins. Kaupmannahafnarlögreglan vinnur út frá þeirri kenningu að um uppgjör milli glæpagengja sé að ræða en tilkynning barst um árásina á áttunda tímanum í kvöld að staðartíma.
Tveir dökkklæddir menn, sem huldu andlit sitt með grímu, flúðu af vettvangi á rafhjólum. Þeir hafa ekki enn fundist en tvennt annað var handtekið og lögregla rannsakar nú hvort það fólk hafi tengsl við árásina.