29. ágúst 2023 kl. 0:48
Erlendar fréttir
Bretland

Tafir geta orðið á ferðum um Heathrow-flugvöll

Búast má við áframhaldandi truflunum á umferð um Heathrow flugvöll á Bretlandi í dag, þriðjudag. Hann er fjölfarnasti flugvöllurinn á Bretlandseyjum. Búist er við að allt verði með eðlilegum hætti á Gatwick, þeim næst stærsta, samkvæmt frétt á Sky.

epa05993081 (FILE) British Airways aircraft at Heathrow Airport in London, Britain 13 November 2009. British Airways has cancelled all flights from London's Heathrow and Gatwick airports due to a major IT failure that is causing “very severe
EPA

Mikil röskun varð á flugi til og frá landinu í gær vegna tæknibilunar hjá Bresku flugumferðarstofnuninni. Það olli meðal annars töfum fyrir íslenska flugfarþega. Í gærkvöld var tilkynnt að vandinn væri leystur, en að einhverja tafa yrði þó vart áfram. Flugfarþegar eru hvattir til að leita upplýsinga hjá því flugfélagi sem þeir ferðast með.