28. september 2023 kl. 5:54
Erlendar fréttir
Innrás í Úkraínu

Rússar saka NATÓ um aðild að árás á Svartahafsflotann

Gervihnattarmynd sem sýnir svæði við Sevastopol í kringum höfuðstöðvar Svartahafsflota rússneska hersins á Krímskaga. Á miðri mynd sést reykur stíga upp og liðast yfir svæðið.
ASSOCIATED PRESS / Planet Labs PBC

Rússnesk stjórnvöld saka bandamenn Úkraínumanna á Vesturlöndum um að aðstoða við skipulagningu og framkvæmd loftárásar á Svartahafsflota rússneska sjóhersins í síðustu viku.

Talskona rússneska utanríkisráðuneytisins sagði á blaðamannafundi í gær að enginn vafi lægi á því að árásin hefði verið skipulögð með hjálp leyniþjónustutækni frá Bandaríkjunum og Bretlandi og gervihnattartækni Atlantshafsbandalagsins.

Rússar hafa sakað Bandaríkjamenn og NATÓ um að taka virkan þátt í stríðinu með því að veita Úkraínumönnum vopn og aðra aðstoð.

Varaformaður rússneska öryggisráðsins og utanríkisráðherra Rússlands hafa sagt Bandaríkjamenn yfirstíga mörk með því að senda Úkraínumönnum langdrægar eldflaugar og NATÓ nálgist þannig beina þátttöku í stríðinu