Athugið að þessi frétt er meira en 1 árs gömul

Hugsa alltaf til vina og vandamanna í Úkraínu

Þorgils Jónsson

Fjögur létust þegar flugskeyti hæfði fjölbýlishús í Zaporízjzja í Úkraínu í fyrrinótt og nokkur særðust.

Karl Þormóðsson bjó í borginni ásamt fjölskyldu sinni þegar Rússar réðust inn í landið og dvaldi þar um hríð eftir að átökin hófust en hefur verið hér á landi undanfarið.

Í viðtali í Morgunútvarpi Rásar 2 sagði Karl að hugurinn leiti alltaf til vina og vandamanna þegar svona fréttir berist. En þau hafi sloppið vel hingað til og húsið þeirra sé vestan við fljótið Dnjepr, en umrædd sprenging hafi verið í austurhluta borgarinnar.

„Við hringjum í nánustu ættingja og vini. Athugum hvort sé í lagi með þau. Og líka til að fá beint í æð hvað gerðist, því fréttaflutningurinn verður stundum svolítið ruglingslegur.“

Annars segir Karl að íbúar reyni að lifa sínu lífi frá degi til dags þrátt fyrir allt.